|
|
14.06.2007 20:26:41 / gaggoaust
»
07.06.2007 08:51:23 / gaggoaust
Hæ öll sömul.
Bekkjarmyndin er kominn. Dadadadada.
Er verið að keyra henni út til ykkar og svo þeir sem búa
ekki i RVK fá hana í pósti.
Þetta er hin fínasta mynd.. Vá hvað við eldumst vel ;-)
Takk Elli fyrir að taka þessa frábæru mynd fyrir okkur.
Kveðja frá mér..
Ólöf
P.S Við munum láta hana líka á bloggið okkar.
Og vonandi hittumst við fljótlega aftur..
»
21.05.2007 23:48:09 / gaggoaust
Jæja þá er ég búin að skella inn myndum, Ólöf líka og
Sammi. Við Sammi erum með linka inná myndasíðurnar hjá okkur, en
Ólöf setti sínar inná myndir undir reunion.
Ég verð að segja að sumar myndirnar hjá mér eru ansi
skrautlegar, ein svona draugamynd, held reyndar að þetta sé Ólöf en
er samt ekki viss. 
Endilega kíkið á Sammamyndir, Laugumyndir og svo reunion.
Tjá Tjá Lauga
»
21.05.2007 09:12:38 / gaggoaust
Ég vil byrja á því að þakka ykkur fyrir frábært kvöld, án ykkar
hefði þetta ekki tekist, þrátt fyrir vinnu
undirbúningsnefndar. ´80´s rúlar 
Kennurum frá Austó vil ég líka þakka sérstaklega fyrir að hafa
tekið svona vel á móti okkur. Þetta var æðinslegt
að byrja þarna, þetta braut ísinn og öllum leið að ég held bara vel
og gaman að rifja upp minningarnar tengdar skólanum.
Þannig Gummi, Héðinn, Elli, Pétur og Jason takk kærlega fyrir
okkur.
Ætla svo að reyna setja inn myndir í kvöld frá gillinu.
Kv. Sigurlaug
»
18.05.2007 22:53:45 / gaggoaust
»
18.05.2007 22:49:50 / gaggoaust
Fyrir sirka bát 10 árum ef einhver spyr (það geta sko ekki verið
10 ár, ég er nýhætt í Austó)
þá var 80´s málið, hver man ekki eftir vængjunum, glossinu,
grifflunum, breikinu, miami vice,
Can´t touch this og fleira skemmtilegu 
Eins og þið sjáið og ég margsagði Helga hefur stærðfræðin ekki nýst
mér baun 
En hér eru nokkrar skemmtilegar heimasíður til að rifja upp ef
einhver er kominn með gleymskuna:
http://www.fast-rewind.com/
- allt um kvikmyndir frá þessum tíma
http://www.afn.org/~afn30091/80songs.html
- allt um lög frá þessum tíma
http://www.80scartoons.net/ -
teiknimyndir
http://www.yetanotherdot.com/asp/80s.html
- textaþraut
http://www.club977.com/ -
hlustaðu á 80´s tónlist á netinu
http://www.pure80spop.co.uk/
»
18.05.2007 13:06:26 / gaggoaust
Ég vil endilega leyfa ykkur að vita hvað við fáum að snæða á
morgun.
Matseðill hljóðar svona:
Grill
Heilgrillað lambalæri með kryddjurtahjúp,heilgrilluð
nautalund og kalkúnabringa
Saltöt sósur grænmetisréttir og
kartöflurréttur.
Hljómar þetta ekki bara vel. Sjáumst á
morgun
Kv. Sigurlaug
»
18.05.2007 08:49:20 / gaggoaust
Nú er þetta alveg að bresta á. Á morgun mun þessi skemmtilegi
hópur hittast, mörg hver hafa ekki sést í 20 ár, og nokkur okkar
hafa ekki sést í 10 ár.
Hlakka til að hitta ykkur á morgun.
Kv. Sigurlaug
»
15.05.2007 10:47:50 / gaggoaust
Nú eru bara 4 dagar til stefnu, ég vona að flestir séu
komnir í gírinn og farnir að telja niður eins og ég .
Þetta verður BARA gaman.
Kveðja Sigurlaug
»
10.05.2007 10:51:11 / gaggoaust
Jæja sælt veri fólkið, ég veit ekki hvort þið gerið ykkur grein
fyrir því, en það eru 9 dagar í reunion-ið , og ég er orðin
rosalega spennt að hitta ykkur (svo ég tali nú bara fyrir mína
hönd).
En til að þetta gangi allt saman hjá okkur verðið þið að fara að
borga, Ragna tók þetta að sér að halda utan um peningamálin. þennig
að plííííssss farið nú að borga henni.
Ragna
Gestsdóttir
knt:260671-4649
Banki 101-26-370080 kr. 5.800,-
Klæðnaður og drykkir
Hvað segið þið um að
hafa ´80 þema, ´ þá getum við haft þetta eins og við viljum,
túberað hár, bleikar legghlífar, ég veit að Ágústa H, var hrifin af
svona grænum hermanna jakka (svona jakki eins Raggi og Billi voru
alltaf í ), þá erum við með alla flóruna, við getum líka
komið í okkar fínasta pússi, eða bara verið í fötum sem okkur
finnst þægilegast að vera (bara ekki adamklæðum).
Vín með matnum er því miður ekki inni í verðinu hjá okkur,
þannig að hver og einn verður víst að sjá um sig í þeim málum.
Kveðja Sigurlaug
»
09.05.2007 15:18:31 / gaggoaust
Jæja austurnar mínar
J
Núna eru 10 búnir að greiða af þeim 34 sem
eru búnir að tilkynna mætingu á
árgangsmót.Undirrituð hefði viljað að fleiri væru
búnir að borga en fresturinn er að sjálfsögðu út næsta
föstudag. Eftir helgi munu svo hefjast massífar
innheimtuaðgerðir hehe En
bara muna að borga síðasta lagi föstudaginn 11. maí
nk: Fjárhæðin er 5.800 kr. per
mann.Innifalið í því er leiga á sal, rúta,
fordrykkur, kaffi, konfekt, snakk, dúkar og
annað.Og af gefnu
tilefni þá er maturinn að sjálfsögðu innifalinn, fellur undir
annað J
Reikningur
101-26-370080Kt.
260671-4649Senda
staðfestingu á greiðslu á ragna@ils.is
Over and out, sjáumst hress og
kát Ragna
»
16.04.2007 19:43:20 / gaggoaust
Hæ
Dagskráin er farin að skýrast og lítur núna
svona út:
18:00 Austurbæjarskóli; fordrykkur, snittur og
skoðunarferð
19:30 Rúta frá Austurbæjarskóla að
Gróttuheimili
20:00 Matur
22:00 Matur búinn og formlegri dagskrá
lokið
02:00 Allir farnir út úr Gróttuheimilinu
Það er tvennt sem okkur vantar:
1) Rútu, auðvitað er hægt að panta rútu - en
ef einhver skyldi hafa góð sambönd þá væri ekki verra að nota
þau til að fá betri prís og við gætum þá eytt peningnum okkar í
eitthvað annað
2) Hjálparhendur við borðhaldið og í tiltekt.
Þar sem það væri ekki gott fyrir neitt okkar að standa í einhverju
brasi þetta kvöld þá er nauðsynlegt fyrir okkur að ráða einhverja
(unglinga?) sem geta hjálpað til með borðhaldið og svo til að ganga
frá salnum eftir að við förum. Getið þið hjálpað til við að finna
slíkt fólk?
Rokk og ról.
Palli
»
08.04.2007 23:44:00 / gaggoaust
Hæ
Bara rétt að láta vita að þetta er allt að gerast. Það
stefnir hraðbyri í að við verðum þrátt fyrir allt í öðru
bæjarfélagi en þó ekki lengra en svo að við verðum væntanlega
í sal Gróttu sem er við hliðina á Seltjarnarnesslauginni.
Þar er salur þar sem við getum farið yfir helstu atriði
síðustu 20 ára og rokkað feitt eins og þar stendur.
Það eru komin einhver tilboð í mat en þegar það verður
komið meira á hreint þá dúndrum við þeim upplýsingum hingað
inn.
Bkv,
Dúddi
»
22.03.2007 00:18:23 / gaggoaust
Heil og sæl
Eins og stendur í yfirskriftinni þá fer að styttast í
hittinginn, nú eru tæpir 2 mánuðir í herlegheitin. Því væri gaman
að þeir sem eiga eftir að senda inn myndir af sér (í núverandi
ástandi híhíhí) þá væri gaman að þær færu að berast inn á borð til
okkar.
Eins og er þá erum við að fá send til okkar tilboð yfir
veitingar til að snæða. Viljum við ekki fá eitthvað gott að borð
?
Endilega látið í ykkur heyra og segið okkur hvað ykkur
langi í, ég veit að við getum ekki gert öllum til geðs eins og
alltaf, þar við erum 40 stk. En við verðum að vita hvort þið séuð
grænmetis eða bara hræætur (smá grín) , eða hvort þið hafið
einhvers konar óþol fyrir einhverju.
Nú er því bara að komment um hvað þið sjáið fyrir ykkur í þeim
efnum.
Kv. Sigurlaug
»
05.03.2007 22:19:57 / gaggoaust
Jæja það lítur út fyrir það að við verðum í bænum í mai, ég er
búin að tala við Gumma yfirkennarar(skólastjóra), hann er tilbúin
að taka á móti okkur og opna fyrir okkur skólann okkar, þar sem
gleðin mun hefjast. Við getum fengið sal á íþróttafélaginu Gróttu,
en þangað yrði haldið á eftir (ef við tökum þann sal), þar sem sest
verður niður að snæðingi og haft gaman. Hvernig líst ykkur á þetta
fyrirkomu lag? Ég fór og heilsaði upp á Ella kennara og honum
fannst sniðugt að við myndum láta taka af okkur nýja bekkjarmynd,
ég verð að segja að mér finnst það líka sniðug hugmynd.
Endilega látið í ykkur heyra hvað ykkur finnst.
Kveðja Sigurlaug
»
Síður: 1 2
|
Dagatal
| janúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | | 29 | 30 | 31 | | Fyrri | Næsti |
|